Kortagerð danskra yfirvalda á Íslandi


Anddyri
Aðgangur ókeypis

Ísland var hluti af danska konungsríkinu allt til 1944, eitt nokkurra hjálendna þess. Dönsk yfirvöld stóðu fyrir umfangsmiklu átaki í nokkrum áföngum til að kortleggja þessa hjálendu sína með kerfisbundnum hætti. Fyrsta átakið voru strandmælingar við vestanvert landið seint á 18. öld. Snemma á 19. öld var mælingum á strandlínunni haldið áfram og landið fékk loks þá lögun sem birtist á síðari tíma kortum.

Um aldamótin 1900 var hafist handa um afar metnaðarfullar mælingar og kortagerð, sem náði að lokum til alls landsins og lauk ekki fyrr en á lýðveldisárinu 1944. Þetta mikla verk var unnið af landmælingadeild danska herforingjaráðsins (Generalstabens Topografiske Afdeling) og síðar Landmælingastofnun Danmerkur (Geodætisk Institut). Hópar landmælingamanna fóru kerfisbundið um landið með tól sín og tæki, ákvörðuðu hnattstöðu, settu út þríhyrninganet, mældu fjarlægðir og hæð yfir sjávarmál, söfnuðu örnefnum – og teiknuðu.

an old map from 1800 of the areas in Icealand that the Danish army cartographer

Þessi sýning gefur dálitla innsýn í hina gríðarlegu vinnu sem lá að baki þessum verkefnum. Til sýnis frá strandmælingunum sem byrjað var á eru tvö útgefin kort, sem auðvelduðu sjófarendum að átta sig á landslagi við strendur landsins. Frá kortlagningarátakinu mikla sem hófst við upphaf 20. aldar má skoða uppköst og vinnuteikningar af sveitabæjum og þéttbýlisstöðum, handteiknuð kort með örnefnum, þrívíddarmyndir og ljósmyndir af landmælingamönnum að störfum við aðstæður sem voru harla ólíkar heimalandi þeirra.

Lokaafurðirnar voru Herforingjaráðskortin svokölluðu, sem var röð staðfræðikorta í mælikvörðum 1:50.000 og 1:100.000. Þau má skoða í bókinni Islands Kortlægning, sem gefin var út árið 1944 og markaði lok verksins í heild. Kortin bera ekki einungis vott um vísindalega nákvæmni og færni í landmælingum með þeirrar tíðar tækni, heldur eru þau unnin af listfengi og næmi fyrir sérkennum þessa hrjóstruga eylands. Þau þykja enn meðal fallegustu korta sem gerð hafa verið af landinu.