Myndrænfrásögn: Sögur um tengsl við náttúruna er verkefni sem byggir á vinnusmiðju sem haldin var í Norræna húsinu daganna 18 .– 22. mars. Útkoman er aðgengilegt kennsluefni sem var þróað með styrk frá Erasmus+.
Smellið hér til að skoða kennsluefnið
Verkefnið er samvinnuverkefni unnið í samstarfi við Bókasafn Anykščiai í Litháen og þróun verkefnisins miðar einnig við að styrkja tengsl þessara stofnanna. Frumkvæði verkefnisins var átti sèr stað í Litháen hjá Ema Abramovaitė-Juškienė. Framkvæmd verkefnisins og útfærsla var í höndum Ásthildar Jónsdóttir og Ellenar Gunnarsdóttir.
Vinnusmiðjur miðuðu meðal annars við að æfa frásagnarlist sem tengir persónulega og vistfræðilega meðvitund út frá SEE kennslufræði sem þróuð var við Emory-háskóla. Fræðin miða við að víkka út hefðbundið félags- og tilfinninganám með því að samþætta siðferðilega meðvitund, kerfishugsun og alþjóðlega ábyrgð. Nú er hægt að nálgast kennsluefnið ásamt upplýsingum um verkefnið bæði á ensku og íslensku í pdf formi hér á heimasíðu Norræna hússins.