UNDIR YFIRBORÐINU: Málþing um mikilvægi moldar 🪱
16:00
Mold er svo miklu meira en skíturinn undir skónum okkar.
Þetta þunna lífræna lag jarðar framleiðir um 95% matvæla heimsins, síar og hreinsar vatn, hýsir ótrúlegan líffjölbreytileika og bindur stórkostlegt magn kolefnis. Moldin er ein helsta undirstaða lífs á landi – og á sama tíma ein vanmetnasta og viðkvæmasta auðlind jarðar. Talið að um þriðjungur alls jarðvegs í heiminum sé orðinn nokkuð eða mjög rýrður vegna ofnýtingar, rofs, mengunar og ósjálfbærrar landnýtingar.
Hvers virði er heilbrigður jarðvegur í raun? Hvaða líf leynist í moldinni undir fótum okkar? Og hvernig getum við snúið við þróuninni og komið betur fram við þessa mögnuðu en takmörkuðu auðlind?
Á þessu málþingi munum við kafa ofan í leyndan heim moldarinnar og leita að svörum við þessum mikilvægu spurningum. Auk þess munum við heyra um, og fá „sneak-peek“ inná sýninguna „Himna“ sem opnar formlega í Norræna húsinu þann 6. júní – og hverfist einmitt um mold. Gestir munu einnig geta tekið með sér heim bréfpoka með moltu úr glænýrri jarðgerðarvél HÍ.
DAGSKRÁ
Erindi flytja:
Thomas Crowther, vistfræðingur og prófessor við ETH Zurich. Hann leiðir Crowther Lab, stofnaði Restor-vettvanginn fyrir endurheimt vistkerfa og situr í ráðgjafaráði fyrir áratug Sameinuðu þjóðanna um endurheimt vistkerfa.
Kristín Sigurðardóttir, slysa-og bráðalæknir, með heildræna sýn á heilsu sem hefur alla tíð sem sinnt heilsueflingu, forvörnum og kennslu. Hún kennir við Læknadeild HÍ, Háskólann í Reykjavík og situr í Lýðheilsuráði Læknafélags Íslands.
Pallborðsumræður:
Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir
Ólafur Arnalds, prófessor emeritus í jarðvegsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands
Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur
Fundarstjóri: Katrín Oddsdóttir
Léttar veitingar og drykkir verða í boði.
ATH: Fyrstu 20 gestirnir fá nýjustu bók Thomas Crowther, Nature’s Echo: Harnessing Ancient Feedback Loops to Heal a Changing Planet, að gjöf! En bókin kemur einmitt út sama dag og málþingið er haldið.
Málþingið er skipulagt af Norræna húsinu og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands og fer fram á íslensku og ensku.