H.B. Arndal
15:00
Hildur Berglind Arndal er fjölhæft tónskáld og flytjandi sem hefur skapað sér fjölbreyttan feril bæði sem sólólistamaður og í samstarfi við aðra á Íslandi og erlendis, meðal annars með Ástu Fanneyju Sigurðardóttur og á alþjóðlegum tónleikaferðum með JFDR. Á árunum 2017 til 2023, meðan hún áti heima í Kaupmannahöfn, þróaði hún með sér sérstaka „einmana trúbadúr“ persónu undir listamannsnafninu H.B. Arndal, sem leiddi af sér plötuna Morning, Woman. Platan var tekin upp í litlu heimavistarherbergi með einum hljóðnema og einkennist af hráum heiðarleika, húmor og leikrænum dýptum sem spretta af bakgrunni Hildar sem lærðs leikara.
Á sviði stígur H.B. Arndal inn í ýmis hlutverk og á í samtali við þau til að færa fjölbreyttar frásagnir plötunnar til lífs. Þemu á borð við einmanaleika, missi, ást og von fléttast saman þar sem ákveðið kæruleysi þjónar sem leiðarljós.