Velkomin á sumarnámskeið í Norræna húsinu!
9:30-12:00
Velkomin á sumarnámskeið í Norræna húsinu!
Börn á aldrinum 8-12 ára eru velkomin á ókeypis sumarnámskeið í Norræna húsinu.
Námskeiðið er innblásið af sýningum hússins- með áherslu á leynilegt líf skordýra, myndlist og náttúru. Við munum einnig uppgötva undarleg skordýr á borð við Bessadýr (tardigrate) sem finnast nánast í öllum vistkerfum jarðar, allt frá mosaþembu regnskóganna og alla leið norður í íshaf. Bessadýr geta lifað af við erfiðar aðstæður – meirað segja lifa þau af geimferð!
Þátttakendur fá tækifæri til að vinna með mismunandi prenttækni, málningu og klippimyndir og njóta umhverfis Norræna hússins sem og sýninga.
Kennari vinnustofunnar er Estelle Pollaert, franskur listamaður og myndskreytir sem býr og starfar í Reykjavík. Estelle vinnur einnig í þjónustuteymi Norræna hússins og kannast eflaust margir við hana þaðan! Estelle hefur reynslu af kennslu á ensku, frönsku og íslensku.
Til að skrá sig vinsamlegast sendið fullt nafn, aldur og símanúmer umsjónarmanns á hrafnhildur@nordichouse.is
Námskeiðið er ókeypis og fer fram frá þriðjudeginum 16. júní til fimmtudagsins 18. júní. Athugið að engin námskeið eru 17. júní.
Fyrir frekari upplýsingar um aðgengi – smellið hér.