Innblásin af norðri: Sýning á verkum barna
Anddyri &
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis
Velkomin á sýningu á verkum barna úr grunnskólum Reykjavíkur.
Á sýningunni Innblásin af norðri má sjá textílverk, klippi- og vídeóverk og málverk nemenda úr Landakotsskóla, Melaskóla og Hagaskóla. Verkin eru öll innblásin af sýningunni Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum sem nú stendur yfir í Hvelfingu. Verkin eru unnin undir handleiðslu listamanna auk list- og verkgreinakennurum skólanna. Sýningin verður í anddyri og barnabókasafni Norræna hússins á meðan á Barnamenningarhátíð Reykjavíkur stendur.
Leiðsögn fyrir börn og fjölskyldur um sýninguna Gárur: Umbreytingar á Norðurslóðum verður á sunnudag 26. apríl, kl 14:00.
Kynnið ykkur frekari dagskrá Norræna hússins á Barnamenningarhátíð Reykjavíkur hér á heimasíðunni.
Hægt er að sjá frekari upplýsingar um sýningarnar hér.