Vetur/Sumar, Vor/Haust – HönnunarMars 2026
10:00-17:00
Sýnishorn af nýrri línu MAGNEA fyrir vor&sumar 2027. Lína sem byggir á hugmyndafræði merkisins um að gera nýja og ferska hluti í prjóni. Titillinn er leikur að íslensku orðatiltæki sem hefur verið hönnuðinum hugfangið í ferlinu við að hanna prjón inn í norrænan veruleika þar sem árstíðirnar eiga það til að renna inn í hvor aðra.
MAGNEA er íslenskt fatamerki sem leggur áherslu á hönnun á prjónafatnaði og nýjungar úr íslenskri ull. Tilraunir með efni og aðferðir, auga fyrir smáatriðum og frágangi ásamt ástríðu fyrir sjálfbærni og umhverfisvænni tísku hefur leitt hönnuðinn yfir í að vinna náið með íslenskum framleiðendum og kanna möguleika með íslenska ull. Einnig vinnur hún með framleiðendum í Evrópu. Línan sem verður kynnt samanstendur af blöndu af þessu tvennu en grunnurinn liggur í þróun hönnuðarins á eigin efnum. Prjónið og efnin eru vandlega útfærð í látlaus snið og nútímalega hönnun fyrir konur á öllum aldri.
Hönnuður er Magnea Einarsdóttir sem hefur það að markmiði að nota hefðbundnar aðferðir og hráefni á nýjan hátt. Hún hefur tvisvar verið tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands, sýnt verk sín víða um heim og hlotið alþjóðlega umfjöllun og viðurkenningar.
Aðgengi í Elissu sal er gott. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð.