Extinction Event – HönnunarMars 2026


10:00-17:00
Elissa Auditorium

Fyrir HönnunarMars 2026 kynnir fatahönnuðurinn Theo Ike viðburðinn: Extinction Event, sérstaka innsýn í tengsl forsögunnar og framtíðarinnar í gegnum sjónarhorn fatahönnunar. Viðburðurinn fer fram í Norræna húsinu, umkringdu votlendi þar sem líf kom fyrst fram fyrir um það bil 400 milljónum ára.

Homo sapiens hafa verið til í minna en 0,007% af tilvist jarðar, nægilega lengi til að hafa skilið eftir óafturkræf spor í sögu jarðar, en samt hegðum við okkur eins og auðlindir jarðar séu ótakmarkaðar. Við vitum að það sem við gerum getur ekki haldið okkur uppi til eilífðar, en samt höldum við áfram: að nýskapa, hanna, framleiða og eyðileggja. Við stoppum sjaldan til að spyrja: hvað ef við værum einn daginn steingervingarnir, eða hin óæðri tegund?

Viðburðurinn The Extinction Event snertir á sterkum áhuga okkar gagnvart vísindalega ferlinu og þeim heimspekilegu spurningum sem vísindin geta einfaldlega ekki svarað. Gestir eru teknir í ferðalag í gegnum tímann eins og Theo sér hann, þar sem þeir kanna mismunandi flíkur og sviðsmyndir eftir því sem þeir kafa dýpra.

Yfir vikuna geta gestir grafið upp týndar flíkur á uppgraftarsvæðum og skilið eftir framlag sem verður varðveitt til framtíðar. Sumir fá einnig tækifæri til að hanna sínar eigin risaeðlur á flíkur sem þeir geta tekið með sér heim sem minjagrip frá sýningunni.

Kynningin endurspeglar víðari hugmyndafræði Theo um Global Affairs Design: að allt sé meira tengt en við höldum. Tegundir sem lifðu fyrir 98 milljónum ára gætu hafa haft sömu eðlishvöt, langanir, vandamál, greind og þráhyggjur og við, við munum einfaldlega aldrei vita það.

Aðgengi í Elissu sal er gott. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð.

Aðrir viðburðir