Image of the blue tiled roof of The Nordic House, split like a broken mirror. Red lines criss crossing over the image.

Þræðir Tenginga


Aðgangur ókeypis

Fata- og textílhönnun  tekur yfir Norræna húsið á HönnunarMars og umbreytir því í lifandi vettvang fyrir tísku og samtal.

Þema HönnunarMars 2026 er Tengingar. „Hvernig tengjumst við í gegnum tísku, hefðir, siði og handverk?“

Norræna húsið mun hýsa vönduð sýningarrými þar sem bæði upprennandi og rótgrónir hönnuðir sýna verk sín. Dagskráin spannar einnig pallborðsumræður, kynningar, dansgjörning, textílinnsetningu og ljósmyndasýningu, auk innlits í gagnasafn íslenskrar tísku, pop-up verslunar, vinnustofa og te-athafna, allt innan rólegrar norrænnar umgjarðar.

Þræðir tenginga miðar að því að skapa innihaldsrík samtöl um fata- og textílhönnun, menningu og samfélag, og um leið efla gildi þeirra verka sem sýnd eru. Lögð er áhersla á hæfileikafólk úr nærumhverfinu, fræðslu og að efla alþjóðlegt sjónarhorn sem á rætur í íslensku handverki og hefðum.

Opnun fer fram föstudaginn 8. maí frá kl. 17–20.

Hönnuðir og dagskrá:

ALPHA málþing: Menningararfur, handverk og tíska

Í samstarfi við ALPHA stendur Norræna húsið fyrir hálfs dags málþingi þar sem fjallað er um hvernig upprennandi hönnuðir vinna með menningararf og hvernig handverk og klæðnaður tengja saman fortíð og nútíð. Viðburðinum lýkur með opinni prjóna-vinnustofu í umsjón kennara og nemenda úr fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands.

Þátttakendur: Ane Lynge Jorlén, Arnar Már Jónsson, Ása Bríet Brattaberg og Maibritt Marjunardóttir.

Málþing: Föstudaginn 8. maí 09:30-11:00

Vinnustofa: Föstudaginn 8. maí 11:30-13:00

Ása Bríet Brattaberg – Ástandið

Ástarsaga íslenskrar konu og bandarísks hermanns lifir áfram í jakk­anum sem hann skilur eftir. Með tímanum dofnar bæði minningin og flíkin sjálf, þar til aðeins þræðirnir standa eftir. Hún byrjar að gera við hann, spor fyrir spor, knúin áfram af ást á handverki og varðveislu. Þessi saga er ofin inn í flíkurnar, þar sem niðurrif og viðgerðir mætast. Flíkurnar hanga saman á þræði og eru endurbyggðar með fíngerðum prjónaaðferðum. Línan fjallar um ást, missi, minningar og það að varðveita fortíðina með handverki.

Craft Club Reykjavík – Vinnustofa með Juha Vehmaanperä

Prjónahönnuðurinn Juha Vehmaanperä leiðir vinnustofu þar sem þátttakendur læra bylgjumynstur og tuck-prjón. Þátttakendur eru hvattir til að koma með eigin prjóna og prófa mismunandi efni og stærðir. Garn er í boði frá Ístex. Verk Juha snúast um hægfara tísku, hinsegin fræði og handverkshefðir. Hán starfar í Helsinki og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir tilraunakennd prjónaverk sem hafa vakið athygli á alþjóðavettvangi.

Vinnustofa: Laugardaginn 9. maí 11-14

Fatahönnunarfélag Íslands – Manstu eftir mér?

Fatahönnunarfélag Íslands stendur fyrir sýningunni Manstu eftir mér? í Hvelfingu Norræna hússins. Þar fá gestir að skyggnast inn í skjalasafn í mótun, rifja upp tískusveiflur, augnablik og minningar, hitta gleymda vini og taka þátt í samtali um upprifjun og varðveislu.

Á sýningunni má sjá ljósmyndir, myndbönd, úrklippur og flíkur frá árunum 2000–2015 sem varpa ljósi á tímabil sem mótaði íslenska tísku við upphaf nýrrar aldar.

Guðjón Andri Þorvarðarson – Samskipti áferða

Samskipti áferða er sería af vélprjónuðum veggteppum sem kanna samspil lita, áferðar og byggingar. Teppin eru prjónuð úr mörgum litum og nota aðferðir sem skapa lagskiptingu og dýpt. Form og litir breytast eftir sjónarhorni og opinbera undirliggjandi strúktúr textílsins. Guðjón Andri vinnur með prjón sem tæknilegt og sjónrænt tungumál og rannsakar möguleika þess í þrívídd og efnisgerð.

Kristín Ferrell – Ofið í stein

Ofið í stein er fatalína sem rannsakar tengsl minninga og efnis. Textíll og flíkur þróuðust samhliða í ferlinu; vefnaðurinn mótaði form flíkanna og formið mótaði vefnaðinn. Útkoman er lína þar sem snið og efni eru óaðskiljanleg – flíkin er ofin inn í sjálfan textílinn. Verk Kristínar kanna samspil efnis, uppbyggingar og fatnaðar með áherslu á vefnað sem skapandi afl.

Magnea Einarsdóttir – VETUR/SUMAR, VOR/HAUST

Sýnishorn af nýrri línu MAGNEA fyrir vor&sumar 2027. Lína sem byggir á hugmyndafræði merkisins um að gera nýja og ferska hluti í prjóni. Titillinn er leikur að íslensku orðatiltæki sem hefur verið hönnuðinum hugfangið í ferlinu við að hanna prjón inn í norrænan veruleika þar sem árstíðirnar eiga það til að renna inn í hvor aðra.. Magnea vinnur bæði með íslenskum og evrópskum framleiðendum og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir verk sín.

Sigmundur Páll Freysteinsson – Testund

Sigmundur býður upp á rólega testund í Plantan Bístró, þar sem gestir geta notið japansks te á borð við sencha, houjicha, oolong og matcha. Testund flytur inn hágæða te beint frá Wazuka í Japan og leggur áherslu á uppruna, gæði og athöfnina við að drekka te. Sigmundur Páll, stofnandi Testundar, sýnir einnig textílverk sem móta andrúmsloftið í rýminu og endurspegla áhrif japanskrar te-hefðar á hönnun hans.

Sóley Jóhannsdóttir – Daydreaming

Sóley Jóhannsdóttir kynnir fatalínuna Daydreaming, framhald af vel heppnuðu frumverki hennar Sleepwalker. Í aðdraganda hátíðarinnar opnar hún vinnustofu í Gryfjunni í Ásmundarsal þar sem gestir geta fylgst með ferlinu. Línan sameinar draumkennt sjónmál og skýr form og er framleidd í samstarfi við Riccitelli Milano. Sóley, sem hefur starfað hjá Louis Vuitton, Paul Smith og Lemaire, stígur hér fram með sitt eigið merki og markar sér sess á íslenskum og alþjóðlegum tískuvettvangi.

Suskin – Tískugjörningur

Tveir dansarar kanna samband líkamans, hlutar og tíma, þar sem leðurtöskur frá Suskin eru í aðalhlutverki. Í gegnum dans ferðast verkið um ólík skeið lífsins, frá fæðingu til elli, þar sem töskurnar eru stöðugir fylgifiskar, bera með sér minningar, mótast af notkun og þróast með líkamanum. Verkið endurspeglar þá hugmyndafræði Suskin að skapa tímalausa hluti sem fylgja eiganda sínum í gegnum lífið og verða að framlengingu líkamans. Á meðan á HönnunarMars stendur verður Suskin með pop-up verslun í Norræna húsinu á opnunartímum hússins.

Tískugjörningur: Föstudaginn 8. maí 17:20-17:40

Theo Ike – Extinction Event

Extinction Event er upplifun þar sem tískuhönnun, forsaga og framtíð mætast. Gestir ferðast í gegnum tímann og skoða flíkur og sviðsmyndir sem varpa ljósi á stöðu mannkyns í sögu jarðar. Í uppgraftarsvæðum geta gestir fundið „týndar“ flíkur og lagt sitt af mörkum í tímakapsúlu. Sýningin spyr hvað gerist þegar við horfum á okkur sjálf sem framtíðarsteingervinga og minnir á að allt líf er samtengt, líka það sem lifði fyrir milljónum ára.

Vinnustofa: Laugardaginn 9. maí 11-15 & sunnudaginn 10. maí 11-16

Listrænn stjórnandi: Anna Clausen

Aðgengisupplýsingar um rými Norræna hússins er að finna með því að smella hér. 

Aðrir viðburðir