Fjölskyldu miðvikudagur með Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir
10:30
Hafdís Guðnadóttir ljósmóðir og faggildur svefnráðgjafi barna, verður með stutt fræðsluerindi á barnabókasafni Norræna hússins. Hafdís býður upp á fjölbreytta fræðslu og netnámskeið á síðunni sofabordaelska.is.
Í erindinu verður fjallað um svefn barna og hvernig þú getur stutt barnið þitt í átt að góðum svefni á einfaldan og virðingarríkan hátt. Farið verður í gegnum fjögur lykilskref sem mynda grunninn að góðum svefni. Fyrirlesturinn er fyrir foreldra sem vilja skilja svefn barnsins síns betur og fá skýra mynd af því hvað virkar í raun og veru. Erindið er 30 mínútur og svo er tími fyrir spurningar. Hægt er að koma með börn og eru skynjunarleikföng fyrir yngstu gestina á staðnum.
Plantan Bistró er með sérstakt tilboð fyrir unga gesti þessa morgna og hægt er að taka með sér kaffi og með því, niður á barnabókasafn.
Miðvikudagsmorgnar eru hugsaðir fyrir foreldra í fæðingarorlofi, fjölbreyttir viðburðir og skynjunarleikföng – hægt er að nálgast upplýsingar á nordichouse.is.
Aðgengi:
https://nordichouse.is/da/aabningstider-og-tilgaengelighed/