Hyggestund – Skúlptúrískur órói!
13:00-15:00
Velkomin í föndurstund fyrir fjölskyldur af öllum gerðum þar sem gestir kynnast náttúrulegum og ónáttúrulegum efnum sem passa óvænt saman og mynda óróa.
Námskeiðið er innblásið af sýningunni Gárur: Umbreytingar á norðurslóðum sem er staðsett í sýningarsalnum Hvelfingu og teygir sig inn á barnabókasafn.

Þemað verður norðurslóðir og dýrin sem þar búa. Allt efni og útskýringar verða á staðnum og starfsfólk bókasafnsafgreiðslu verður til staðar til að aðstoða gesti eða svara spurningum.
Gestir eru hvattir til að mæta snemma til að heimsækja Hvelfing og fá innblástur frá sýningunni til að búa til vélina sína.
Föndurstundin er ókeypis og ætluð öllum sem hafa áhuga, einnig er ókeypis inn á allar sýningar Norræna hússins.
Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf.