Fjölskyldu miðvikudagar: örfyrirlestur um skaðleg efni í nánasta umhverfi barna.
10:30
Foreldrum, forráðamönnum og öllum áhugasömum er boðið á fyrirlestur um efni í umhverfi barna, fluttan af framkvæmdastjóra norræna Svansins á Íslandi.
Skoðuð verða skaðleg efni í nærumhverfi okkar og af hverju börn eru útsettari fyrir áhrifum þeirra. Rætt verður um skaðsemi mismunandi efna og hvernig hægt er að lágmarka snertingu barna við skaðleg efni í nærumhverfi með einföldum lausnum, upplýstu vöruvali og réttri notkun vara.
Umfjöllunarefni:
– Hvaða efni í nærumhverfi barna eru skaðleg heilsu þeirra?
– Af hverju eru börn sérstaklega viðkvæm fyrir þeim?
– Hvaða áhrif hafa þessi efni?
– Hvar eru þau helst að finna?
– Hvaða vörur er hægt að nota í staðinn?
Fyrir hvern:
Foreldra / forráðamenn, ömmur og afa, leikskóla- og skólastarfsfólk, öll sem starfa með börnum og öll sem hafa áhuga á velferð barna.
Viðburðurinn fer fram á barnabókasafni Norræna hússins og er gestum velkomið að hafa börn með í fylgd. Tilboð verður á Plöntunni Bístró kaffihúsi fyrir yngstu gesti og velkomið að taka kaffi með sér niður á barnabókasafn.
Fyrirlesari:
Guðrún Lilja Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Svansins á Íslandi.
Aðgengi í Norræna Húsið:
Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf. Opnunartími er ÞRI-SUN kl. 10:00-17:00. Viðburðurinn fer fram á íslensku.
Aðgangur að bókasafninu og öllum viðburðum er ókeypis.