3. í aðventu: Tónlist víðsvegar að úr heiminum!
14:00
Fjölskyldur og börn af öllum uppruna eru boðin velkomin að fagna árslokum með tónlist frá öllum heimshornum. Tónleikarnir eru hugsaðir fyrir börn, smábörn og fjölskyldur þeirra.
Markmiðið er að bjóða upp á þátttökuupplifun þar sem allir geta sungið og spilað. Dagskráin inniheldur sólstöðusöngva, íslensk, arabísk og latnesk-amerísk lög og fleira. Á viðburðinum munum við útvega fjölskyldum litríka trefla og eggjahristara til að spila saman. Að því loknu eru gestir velkomnir að hitta og spjalla við tónlistarmennina.
Fögnum þessum tíma ársins með ríkri fjölmenningarlegri upplifun!
Fram koma:
Rima Nasser, söngur
Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, fiðla, harmonikka og söngur
Sólveig Thoroddsen, harpa og söngur
Sergio Coto Blanco, gítar
Kristofer Rodriguez Svonuson, slagverk
Natalia Duarte Jeremias, listræn stjórnun
Tónleikarnir eru styrktir af Barnamenningarsjóði Íslands og skipulagðir af Tónagulli í samstarfi við Norræna húsið.
Opnunartími og aðgengi: Elissa hefur gott aðgengi fyrir hjólastóla, að húsinu liggur rampur og við aðaldyr er sjálfvirkur hnappur. Á aðalhæð eru aðgengileg salerni.