
RIFF í Norræna húsinu 2025
Við erum stolt að taka aftur á móti vinum okkar í RIFF, Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, árið 2025!
Dagskráin í Norræna húsinu fer fram 27.09.2025 – 05.10.2025 og er boðið uppá fjölbreytt úrval viðburða:
Athugið að aðgangur er ókeypis að viðburðum RIFF í Norræna húsinu, en í sumum tilfellum er skráning nauðsynleg. Nánari upplýsingar á Riff.is
UngRIFF býður upp á dagskrá fyrir börn í og mun sýna fjölbreyttar kvikmyndir og stuttmyndir fyrir börn og unglinga. Einnig verður áhersla lögð á Línu Langsokk með sýningu á einni af klassísku Línumyndunum á íslensku og i kjölfarið verður haldin vinnustofa/Hyggestund í pappírmassa klístri á barnabókasafninu!
Bransadagar verða haldnir í Norræna húsinu eins og undanfarin ár.
Sýndar verða „Kvikmyndir frá Norðri“ og fleiri frábærir viðburðir.
Sjá má alla dagskrána á riff.is eða smella hér til að fara beint á vefsíðu þeirra.
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Aðgengi að Elissu sal er gott, athugið að lágur þröskuldur er inn í salinn. Aðgengileg salerni eru á sömu hæð. Aðgangur að barnabókasafninu er um stiga frá bókasafninu eða með lyftu í gegnum sýningarsalinn í Hvelfingu. Nánari upplýsingar er að finna hér á vefsíðu okkar og einnig getur starfsfólk okkar, í afgreiðslu bókasafnsins, aðstoðað eftir þörfum.