Leikverk: Af fjöllum er ég komin


20:00 - 22:00
Salur
Miðaverð ISK 0Kaupa miða

Leikverk eftir Sigríði Höllu Eiríksdóttur og Kristínu Þorsteinsdóttur.

Ókeypis er inn á leikverkið en nauðsynlegt að bóka miða -smellið á hnappinn hér að ofan.

Alda og Bára, ÖlduBára eða BáruAlda.

Hjartans vinkonur úr menntaskóla stýra ævintýrafleyi sínu út í heim.

Þær dreymir stóra drauma og deila ást á Lárusi Pálssyni guðföður íslensks atvinnuleikhúss.

Þær vilja nú fylgja í fótspor hans og nema leiklist í Kóngsins Kaupmannahöfn..

En djúp útþrá á það til að breytast í jafn djúpa heimþrá um leið og landi sleppir.

Hvað er málið? Og hvað hefði Lárus gert í þeirra sporum?

Af fjöllum er ég komin, er samsett/devised verk sem Sigríður Halla Eiríksdóttir og Kristín Þorsteinsdóttir hafa skapað í sameiningu og er hluti af lokaári þeirra í leiklistarnámi við Copenhagen International School of Performing Arts. CISPA.

Þær unnu verkið út frá orðunum Útþrá/Heimþrá og völdu gaman saman stíl. Norræna Húsið er meðframleiðandi og verða kynningarnar þar laugardaginn 8.febrúar og sunnudaginn 9. Febrúar kl 20:00

Listrænt teymi:

Hödundar og leikara: Kristín Þorsteinsdóttir og Sigríður Halla Eiríksdóttir

Viðmælandi: Jóhanna Hauksdóttir

Textar: Jónas Hallgrímsson, Shakespeare, Jóhannes úr Kötlum, Eðvald Halldórsson.

Hljóðmynd: Anna Róshildur

Sviðshreyfingar: Sóley Ólafsdóttir

Búningar: Íris Ólafsdóttir

Plakat: Katrín Hersisdóttir

Ljósmyndir: Christopher Lund

Leiðbeinandi: María Ellingsen

Dramatúrg: Þorsteinn J.

Sérstakar þakkir:

Dansverkstæðið

Auður Björnsdóttir

Fjölnismenn

Lárus Pálsson

Aðgengi í Elissu sal er ágætt, það er lágur þröskuldur inn í salinn. Á sömu hæð er salerni með góðu aðgengi og skiptiaðstöðu. 
Að Norræna húsinu liggur rampur og við aðaldyrnar er sjálfvirkur hnappur. Frekari spurningar um aðgengismál má senda til: kolbrun(at)nordichouse.is