Kisi gengur laus: brúðuleikhús með jólaþema
11:00
Kisi gengur laus er 40 mínútna löng brúðuleiksýning þar sem íslensku jólasveinunum og jólakettinum bregða fyrir ásamt fleiri kunnuglegum verum.
Sýningin verður flutt með handbrúðum og strengjabrúðum, með lifandi tónlist banjó og munnhörpu. Sýningin verður á ensku en er tilvalin fyrir fjölskyldur óháð tungumáli.
Sýning Marks „Á Jólakattarins Slóð“ sem flutt var fyrir jólin í fyrra hér í Norræna húsinu var gífurlega vinsæl og var fullt út úr dyrum. Við mælum því með að mæta tímanlega til að tryggja sér sæti.
Mark Blashford sérhæfir sig í hefðbundnum brúðuleik, þar á meðal: marionette, skugga, stöngum og handbrúðuleik. Mark er lærður brúðusmiður og hlaut MFA í brúðulistum frá University of Connecticut árið 2017. Hann hefur einnig stundað nám í Þýskalandi, Tékklandi og Bretlandi. Mark, sem áður var búsettur í Chicago, Bandaríkjunum hefur búið í Reykjavík síðan í september 2022. Hann er kennari í Bernd Ogrodnik’s Academy of the Wooden Puppet. Blashford kemur fram í Bandaríkjunum undir nafninu Rootstock Puppet Co. og á Íslandi sem Flóki Brúðuleikhús. Með list sinni vill hann kynna brúðuleikhús sem flytja sögur sem stuðla að gagnkvæmri góðvild og vistfræðilegri vitund til heilla fyrir fólk og umhverfi þess.
AÐGENGI: Elissa (salur) og salernin eru aðgengileg fyrir hjólastóla, þó er lítill þröskuldur inn í salinn. Öll salerni eru kynhlutlaus. Sýningin hentar fólki á öllum aldri og er flutt á ensku en er þó óháð tungumálum.