Hringrásarhagkerfið – hlutverk okkar í að minnka sóun
12.00-12.45
Hvernig er hægt að stuðla að ábyrgri framleiðslu og neyslu þegar kemur að matvælum, fatnaði, byggingariðnaði, sjávarfangi og fleiru? Fundurinn varpar ljósi á hvernig fyrirtæki og almenningur geta tileinkað sér lausnir sem styðja við hringrásarhagkerfið og þar með minnkað sóun til hagsbóta fyrir efnahag, umhverfi og samfélag.
Í pallborði:
- Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar
- Björgvin Sævarsson, framkvæmdastjóri Yorth Group
- Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis
- Sigríður Ósk Bjarnadóttir, byggingarverkfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf, dósent við HÍ og í stjórn Grænni byggðar
- Sara Jónsdóttir, frumkvöðull og önnur af stofnendum On to something
Stuttar kynningar:
- Harpa Júlíusdóttir, verkefnastjóri Festu – miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni, kynnir Nordic Circular Hotspot
- Marthe Haugland, verkefnastjóri hjá Nordic Innovation, kynnir Nordic Circular Economy Playbook (á myndbandi)
Fundarstjóri: Dr. Snjólaug Ólafsdóttir, verkefnastjóri í sjálfbærni og sjálfbærnimarkþjálfi hjá EY á Íslandi.
Að fundinum standa Norræna húsið, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og sjálfbærni og Grænvangur – samstarfsvettvangur ríkis og atvinnulífs um loftslagsmál og grænar lausnir.
Fundurinn er hluti af dagskrá Fundar fólksins sem fer fram 3. og 4. september. Viðburðinum er streymt hér á vef Norræna hússins og á fundurfolksins.is