Laut er veitingastaður þar sem íslensk náttúra, hráefni og norræn matargerð mætast.
Á daginn býður Laut upp á léttar veitingar, kaffi og hádegisverð í notalegu umhverfi Norræna hússins. Á kvöldin er boðið upp á metnaðarfullan margrétta smakkseðil þar sem íslenskt hráefni og sjávarfang eru í forgrunni.
Laut er rekinn af matreiðslumanninum Arnóri Inga Bjarkasyni ásamt bróður hans Sigurði Birni og foreldrum þeirra, Laufeyju og Bjarka. Arnór Ingi er jafnframt eigandi og yfirkokkur á veitingastaðnum Skóg í Vilnius, Litháen, sem er í hinum virta Michelin Guide.
Hugmyndafræði veitingastaðarins byggir á virðingu fyrir íslensku hráefni og nærumhverfinu, með áherslu á einfaldleika, gæði og norræna matargerð.
Verið velkomin í Norræna húsið!



