Umhverfishátíð í Norræna húsinu.

Gerum heimilin grænni!


13:00–17:00

Umhverfishátíð í Norræna húsinu

Helgina 7–8. apríl kl. 13–17

Helgina 7-8. apríl mun fjölbreytt umhverfisdagskrá fyrir gesti á öllum aldri fylla Norræna húsið. Markmiðið er að kynna einfaldar og skemmtilegar lausnir sem stuðla að grænna heimili.

Boðið verður upp á m.a. smiðjur, fyrirlestra, námskeið, kynningar, hönnunarsýningu og heimildarmyndir. Viðburðirnir eiga sammerkt að kynna leiðir til að nýta betur verðmætin allt í kringum okkur og draga úr sóun á ýmsum sviðum.  Hér er hægt að skoða viðburði í tímaröð
Heimili okkar – hús og garður – eru lítil vistkerfi þar sem við setjum reglurnar!

Helstu samstarfsaðilar eru: Garðyrkjufélag Íslands, Landvernd, Listaháskóli Íslands, Matís, Sorpa, Umhverfisstofnun og Vakandi. Norðurlönd í fókus taka þátt í að skipuleggja og kosta umhverfishátíðina.

Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

 

Viðburðir fyrir börn/fjölskyldur

  • Umhverfisskóli Landverndar, fræðsla og skemmtilegar þrautir sem veita færni til að takast á við umhverfismál í daglega lífinu. Hér skoðum við m.a. plastagnir í smásjá og kynnumst nýrri lykt og bragði í spennandi bragðlaukaþjálfun fyrir hugrakka krakka. Sunnudag kl. 13-14 og kl. 14-15 á barnabókasafni Norræna hússins.
  • Heimsókn í gróðurhúsið til ömmu náttúru, gróðursetjum og fáum góð ráð fyrir garðinn, laugardag og sunnudag kl. 13-16 í gróðurhúsi Norræna hússins.
  • Furðuverusmiðjan, viltu búa til furðufisk eða geimveru? Þú ræður! á vinnustofunni verður unnið með textílefni sem fellur til við framleiðslu á Íslandi, laugardag kl. 14-16 (skráning). Viðburðurinn fer fram í Black Box á neðri hæð hússins.
  • Vorverkin í Vatnsmýrinni, Fuglavernd stendur fyrir tiltekt í fuglafriðlandinu í Vatnsmýrinni, göngutúr til góðs! Laugardag kl. 13-17 í Vatnsmýrinni.

Aðrir viðburðir

    • Svona drögum við úr matarsóun / Fyrirlestrar: Selina Juul frá Stop Spild af Mad og Klaus B. Pedersen frá Too Good To Go. Bæði hafa hlotið Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fyrir frábæran árangur í baráttunni gegn matarsóun. Umhverfis- og auðlindaráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson ræðir við gestina eftir fyrirlestrana. Laugardag kl. 16-17 í hátíðarsal Norræna hússins. Spjall og bjórsmökkun eftir viðburðinn í boði Toast Ale – einstakur bjór úr afgangsbrauði. Streymt er frá fyrirlestunum.

  • Súrkál fyrir sælkera: Dagný Hermannsdóttir fræðir gesti um bæði ævafornar og nýtískulegar aðferðir til að sýra grænmeti. Gestir fá tækifæri til að smakka einstök sýnishorn úr garðinum hjá Dagnýju! Sunnudag kl. 13-14 í Black Box/kjallari.
  • Örnámskeið í moltugerð: Garðyrkjufélag Íslands stendur fyrir námskeiði í moltugerð og kynnir einfaldar aðferðir sem henta bæði fyrir eldhúsið og garðinn. Sunnudag kl. 14-15 í Black Box.
  • Al-íslenska flatbakan: matarspjall og smakk, Sveinn Kjartansson sjónvarpskokkur og Eveline Bünter frá Flatbökusamsteypunni ræða um hinar fullkomnu sveigjanlegu uppskriftir OG hvernig nýta má íslenskt hráefni á frumlegan hátt. Rakel Garðarsdóttir leyfir þátttakendum að bragða Toast Ale – einstakan bjór úr íslensku afgangsbrauði! Sunnudag kl. 15-17 í Black Box.

Heimildarmyndir

  • Just Eat It: A Food Waste Story, margverðlaunuð heimildarmynd um matarsóun, föstudag 6. apríl og sunnudag 8. apríl kl. 18. Myndin er í sýnd í hátíðarsal Norræna hússins.

http://www.foodwastemovie.com

  • Flatbökusamsteypan, á hátíðinni verður hægt að sjá stutta heimildarmynd um hið bráðfallega matarverkefni Flatbökusamsteypunnar.  Myndin er 17 mín og sýnd á milli kl. 13 og 17 báða dagana í Aino Aalto stofu Norræna hússins.

 

Um að vera í húsinu lau og sun kl. 13-17

Fræðslu- og kynningarbásar

  • Arctic Barley
  • Fuglavernd
  • Gardyrkjufélag Íslands
  • Graenviska.is
  • Í boði náttúrunnar
  • Klaran.is
  • Landvernd
  • Ljótu kartöflurnar
  • Matis
  • mena.is
  • Mistur.is
  • Sorpa
  • Súrkál fyrir sælkera
  • Ugly
  • Umhverfisstofnun

Matarhönnun: Sýning á vegum hönnunarnema við Listaháskóla Íslands

Þema sýningarinnar er matur, matarupplifun, matarhönnun, vannýtt hráefni og nýsköpun. Frumleg, falleg og þankavekjandi sýning frá upprennandi vöruhönnuðum. Sýningargangur.

Saumaverkstæðið: saumaðu þinn eigin innkaupapoka

Kvenfélagasamband Íslands opnar saumaverkstæði í Norræna húsinu. Áttu efnisbúta, sterklegan dúk eða gardínur heima sem verðskulda nýtt líf? Taktu efnin með og saumaðu þinn eigin innkaupapoka – eða leyfðu annarra að njóta þeirra! verstæðið fer fram í Alvar Aalto stofu Norræna hússins.

 

Hægt er senda fyrirspurnir á kristini@nordichouse.is

Forsíðumynd: Flatbökusamsteypan