
Time After Time
Við lifum á tímum þar sem mannkynið er að ýta náttúrunni að þolmörkum sínum. Áhyggjur af umhverfinu og framtíð jarðarinnar eru í kjarna sínum áhyggjur af okkar eigin afkomu. Náttúran hefur verið mikilvæg uppspretta innblásturs fyrir norrænt listafólk í gegnum tíðina og enn í dag rýna margir samtímalistamenn í náttúruna og umhverfið með verkum sínum og veita innsýn og sjónarhorn sem aðrar stéttir geta ekki miðlað með sama hætti.
Time After Time er sýning fimm norrænna listamanna af ólíkum kynslóðum sem eiga það sameiginlegt að fást við viðfangsefni á borð við náttúru og orku, tíma og sjónarhorn, ljós og myrkur og mennska nærveru og fjarveru. Sýningin teygir anga sína bæði ofan- og neðanjarðar, innan sem utan veggja Norræna hússins. Náttúran, efniviður hennar og hugmyndir eru hinn heimspekilegi grundvöllur sýningarinnar en saman mynda verkin einnig marglaga frásögn sem erfitt er að henda reiður á. Sýningargestir tapa fótfestu í tíma og rúmi og finna fyrir óvissu um hvað sé eiginlega að byrja og hvað að enda, fangaðir í jaðarástandi þar sem minningar, efni og skynjun fléttast saman.
Time After Time er óður til hinnar ótrúlegu getu náttúrunnar til að endurnýja sig, og til hringrásar hennar, og býður vonarneista á tímum sem markaðir eru af stríðsátökum, náttúruhamförum og vistmorðum. Sýningin veltir fram hugleiðingum um andstæður náttúruaflanna og þeirra krafta sem búa í manneskjunni og hinum mennska líkama, og speglar þessa togstreitu í skuggsjá tímans. Hér er á ferð rannsókn á þeim ummerkjum sem mannfólkið skilur eftir sig fyrir komandi tímaskeið og jafnframt áminning um smæð mannskepnunnar í tíma og rúmi.
Sýningarstjóri er Sabina Westerholm, forstöðumaður Norræna hússins