Suskin – Performance HönnunarMars 2026
17:20-17:40
Elissa Auditorium
Suskin kynnir tískugjörning þar sem dans og hönnun mætast.
Tveir dansarar kanna samband líkamans, hlutar og tíma, þar sem leðurtöskur frá Suskin eru í aðalhlutverki. Í gegnum dans ferðast verkið um ólík skeið lífsins, frá fæðingu til elli, þar sem töskurnar eru stöðugir fylgifiskar, bera með sér minningar, mótast af notkun og þróast með líkamanum.
Verkið endurspeglar hugmyndafræði Suskin að skapa tímalausa hluti sem fylgja eiganda sínum í gegnum lífið og verða að framlengingu líkamans.
Popup verslun verður í Norræna Húsinu á meðan á HönnunarMars stendur.
Aðgengi í Elissu sal er gott. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð.