Sögustund með norrænum þýðendum
11.00
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis
Sögustund með norrænum þýðendum
Í tilefni Norrænu bókasafnavikunnar verðum við með sögustund laugardaginn 20. nóvember. Sögustundin er í samstarfi við samtök þýðenda norrænna barna- og unglingabókmennta.
Milli kl. 11 og 12 lesa þýðendur úr völdum barnabókum á norðurlandamálunum og verða sögurnar við hæfi lesenda á aldrinum 2-10 ára.
Eftir sögustundina mælum við með að gestir kynni sér einhverjar af þeim 20.000 bókum á norðurlandamálunum sem finna má á bókasafninu.