Sigurðar Nordals fyrirlestur


17:00

Sigurðar Nordals fyrirlestur

 

Dr. Bo Ralph, prófessor emeritus í málvísindum við Gautaborgarháskóla og félagi í Sænsku akademíunni, flytur opinberan fyrirlestur í Norræna húsinu, mánudaginn 14. september nk. kl. 17.00, á fæðingardegi dr. Sigurðar Nordals. Fyrirlesturinn er á sænsku og nefnist : „et land, … i så många afseenden märkvärdigt“ —Islandsbilden i Sverige under fyrahundra år. Í fyrirlestrinum mun Bo Ralph fjalla um hugmyndir Svía um Ísland á ýmsum tímum.

Bo Ralph varði doktorsritgerð sína, Phonological Differentiation: Studies in Nordic Language History, við Gautaborgarháskóla árið 1975. Hann var ráðinn lektor við skólann 1977 og prófessor við Stokkhólmsháskóla 1982–84. Frá árinu 1984 var hann prófessor í norrænum málum við Gautaborgarháskóla þangað til hann fór á eftirlaun 2012. Bo Ralph hefur birt rannsóknir á sögu norrænna mála og í hljóðkerfisfræði, setningafræði og orðfræði. Hann hefur starfað að ritstjórn orðabóka, bíblíunnar og verka Augusts Strindbergs. Þá hefur hann starfað með Svenska institutet í Stokkhólmi að eflingu sænskukennslu erlendis.

Dr. Bo Ralph var kosinn í Sænsku akademíuna árið 1999 og er einn af átján félögum hennar.

Fyrirlesturinn er í boði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

Allir eru velkomnir.