Ritlistarnámskeið fyrir 18-30 ára í Norræna Húsinu
17:00-20:00
Norræna húsið býður upp á spennandi ritlistarnámskeið fyrir 18–30 ára undir leiðsögn Sunnu Dísar Másdóttur. Námskeiðið fer fram 13. apríl kl. 17:00–20:00.
Áhersla verður lögð á ljóðlist og er þátttaka ókeypis.
Norræna Húsið býður upprennandi höfundum pláss á ritlistarnámskeiðinu hennar Sunnu Dísar. Kennt er á íslensku og námskeiðið verður haldið í Norræna húsinu. Það er kostur að geta einnig tjáð sig og skrifað á öðru norrænu tungumáli.
Nokkrum þátttakendum mun síðar standa til boða að lesa upp ljóð sín á hinni vinsælu ljóðahátíð okkar, Pølse&Poesi, laugardaginn 13. júní.
Sendu umsókn (að hámarki 150 orð) til silje(at)nordichouse.is.
Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. apríl. Valið verður úr umsóknum og eru 10 pláss í boði.
Sunna Dís Másdóttir lauk MA-gráðu í ritlist frá Háskóla Íslands í október 2020 og hefur gefið út fjölmargar bækur. Auk ritstarfa hefur Sunna starfað í ýmsum verkefnum tengdum bókmenntum á síðustuárum; sem þýðandi, ritstjóri, bókmenntagagnrýnandi, verkefnastjóri bókmennta á Borgarbókasafninu, leiðbeinandi í ritlist og ýmsu öðru. Hún hefur verið bókmenntagagnrýnandi í bókmenntaþættinum Kiljunni í nokkur ár.
Aðgengisupplýsingar – smellið hér.
