
LIVE STREAM PARTÝ fyrir Pan-ArcticVision 2024!
18:00
Verið velkomin í partý og beint streymi fyrir Pan ArcticVision 2024!
Laugardaginn 12. Október mun hljómsveitin Vampíra keppa fyrir Íslands hönd í „eurovision norðurslóða“ Pan ArcticVision. Keppnin fer fram í Nuuk, Grænlandi og verður henni streymt beint um allann heim. Í Norræna húsinu verður að þessu tilefni boðið uppá frábæra stemmningu og skemmtilegt kvöld þar sem við fylgjumst saman með keppninni.
Öllum er boðið að taka þátt í kosningu – þú getur haft áhrif á það að þitt uppáhalds atriði sigri keppnina!

Kynnir kvöldsins verður Mighty Bear, hið dularfulla „andlit“ íslenskrar electronic senu.
„Pollinating the worlds of drag culture and abstract electronic pop. Mighty Bear’s show is audio-visual in nature: any danger of laptop-staring, knob-twiddling boredom is immediately dispelled by the accompanying glittering gowns and towering heels, rippling film imagery, masks, wigs, and a bold, charismatic approach to the stage. Strutting onstage in a ghostly, glamorous mask to a soundtrack of intense but ethereal beats, Mighty Bear is the undisputed dark queen of the Reykjavík electronica scene.“
Barinn verður opinn og við verðum með plaköt og fána á staðnum.
Aðgengi að Elissu sal er ágætt fyrir hjólastóla, lágur þröskuldur er inní salinn en enginn þröskuldur er inní salinn frá bókasafni. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð. Viðburðurinn fer fram á ensku.
Verið Velkomin!
Hvað er Pan-ArcticVision?
Pan-ArcticVision er Eurovision fyrir norðurslóðir, frumkvæði til að byggja upp samfélag og valdeflingu á norðurslóðum, til að efla samskipti þvert á landamæri og samræður fólks sem deilir mörgum af sömu lífskjörum þvert á pólitísk skil.
Á hátíðinni 2024 verða þátttakendur frá Alaska, Norður-Kanada (Nunavut), Kalaallit Nunaat/Grænlandi, Íslandi, Færeyjum, Norður-Noregi, Norður-Svíþjóð, Sápmi, Norður-Finnlandi og Rússneska norðurskautinu (í útlegð).
Þú getur lesið allt um þátttakendurnar hér á heimasíðu Pan ArcticVision. Einnig má sjá myndbönd hér á facebook síðu keppninnar.
Fyrsta Pan-ArcticVision hátíðin fór fram í Vadsø í Norður-Noregi í ágúst 2023 og var streymt beint um allann heim. Eftir spennandi atkvæðagreiðslu var Nuuk í Kalaallit Nunaat / Grænlandi valinn næsti staður fyrir hátíðina. Pan-ArcticVision mun nú í annað sinn bjóða norðurskautið velkomið í þessa sannarlega alþjóðlegu þvert á landamæri upplifun af söng, samfélagi og valdeflingu.
Pan-ArcticVision er samstarfsverkefni NORDTING – Northern Assembly, Katuaq – Culture Centre Nuuk, KNR – Greenlandic Broadcast Corporation og Hins hússins í Reykjavík.
Fyrir frekari upplýsingar um PAV vinsamlegast hafið samband við:
Vegard Krane
International Production Manager
Phone: +47 48 09 03 57
vegard@nordting.no
Amund Sjølie Sveen
Artistic Director of Pan-ArcticVision
Phone: +47 95 10 63 22
amund@nordting.no