NÝR LANDSPÍTALI Á BETRI STAÐ – ER ÞAÐ OF SEINT ? – STREYMI
16:30 - 18:00
NÝR LANDSPÍTALI Á BETRI STAÐ – ER ÞAÐ OF SEINT ?
Fimmtudaginn 19. október kl. 16:30 – 18:00 í Norræna húsinu
Opinn fundur Samtaka um betri spítala á betri stað með fulltrúm stjórnmálaflokkanna
- Þarf að athuga staðsetningu nýja Landspítalans betur?
- Hvernig á að velja heppilegan stað fyrir þjóðarsjúkrahús?
- Verður nýr spítali á besta stað betri en spítalabyggðin sem fyrirhuguð er við Hringbraut?
- Er dýrara að byggja nýjan Landspítala á nýjum stað?
- Tekur lengri tíma að byggja nýjan spítala á nýjum stað og ef svo er, hversu mikið lengri?
Þessum spurningum og fleirum verður reynt að svara á þessum opnum fundi.
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna lýsa afstöðu sinna flokka til málsins og svara spurningum.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Fundinum verður streymt.