Manstu eftir mér? – HönnunarMars 2026
10:00-17:00
Elissa Auditorium
Fatahönnunarfélag Íslands stendur fyrir sýningu í Hvelfingu Norræna hússins þar sem gestir fá að skyggnast inn í arkív í vinnslu, rifja upp tískusveiflur, móment og minningar, hitta gleymda vini og taka þátt í samtali, upprifjun og varðveislu.
Á sýningunni verða ljósmyndir, myndbönd, úrklippur og flíkur frá árunum 2000-2015.
Aðgengi í Elissu sal er gott. Aðgengileg og kynhlutlaus salerni eru á sömu hæð.