Jólaföndur – Gamalt verður nýtt


13:00

Jólaföndur í Norræna húsinu 8. desember kl. 13-15 með Málfríði Finnbogadóttur.

Aðgangur er ókeypis og er ætlaður öllum aldurshópum frá 7 ára,  skráning er á tix.is hámark 50 pláss.

Lærðu hvernig þú getur endurunnið efni og skapað fallegt jólaskraut.
Málfríður Finnbogadóttir er með meistaragráðu í menningarstjórn. Á árum áður var hún m.a. við Listasal Mosfellsbæjar sem er hluti af Bókasafni Mosfellsbæjar og með barnablað Morgunblaðsins. Fyrir nokkrum árum vaknaði áhugi hennar á að vinna úr AFSKRIFUÐU efni sem féll til frá bókasafni og úr varð sýning sem fór víða um land. Síðan býr hún gjarnan til jólaskraut úr afskrifuðu efni og hefur það alltaf glatt aðra. 

Hvað þarf?
Ef þú átt efni sem þú telur tilvalið til að gera jólaskraut úr. Ekki hika við að taka það með þér. Á staðnum verða bækur og blöð, skreytiefni, tappar, gömul kort, krukkur og fl.
Áhöld á svæðinu: skæri, lím, heftarar, skapalón, og fl.

Velkomin! munið að tryggja ykur pláss með því að bóka miða á tix.is. Vinsamlegast tilkynnið ef þið hyggist ekki nota miðann, svo sem flestir komist að.