Hálendið – verðmætasta auðlind Íslands?
15:00 -16:30
Af hverju er nauðsynlegt að stofna þjóðgarð um hálendi Íslands?
Þann 1. desember 2020 stendur Landvernd fyrir ráðstefnu um þjóðargersemina hálendi Íslands.
Af hverju er þjóðgarður á hálendi Íslands góð hugmynd? Landvernd efnir til ráðstefnu um hálendisþjóðgarð.
Náttúra Íslands er verðmæt auðlind og sameign okkar allra. Hvernig getur þjóðin sem best notið þessara verðmæta, bæði í efnahagslegum skilningi og til þess að auðga lífið?
Dagskrá
15:00
Erindi
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins
Jón Kalman Stefánsson, rithöfundur
Carol Ritchie, framkvæmdastjóri
EUROPARC – sambands verndarsvæða í Evrópu
16:00
Umræður
Þátttakendum býðst að senda inn spurningar rafrænt.
16:30
Ráðstefnulok
Fundarstjóri er Brynhildur Ólafsdóttir, fjallaleiðsögu- og fjölmiðlakona.
Fundurinn er rafrænn. Útsending verður live á Facebook og notast verður við forritið Slido til þess að senda inn spurningar rafrænt.