FUGLAR Í BORG


13:00-15:

Reykjavík-iðandi af lífi og Fuglavernd boða til Fuglaviku í Reykjavík, dagana 17-23. október þar sem boðið verður upp á margs konar fræðsluviðburði með það að markmiði að vekja athygli á því fjölskrúðuga fuglalífi sem glæðir borgina allt árið um kring.

Fuglavika hefst með áhugaverðu málþingi um fuglalífið í borginni undir yfirskriftinni „Fuglar í Borg“.  á Málþinginu verður m.a. rætt um mikilvæg búsvæði fugla í Reykjavík og gildi þess að hafa fugla í okkar nánast umhverfi við nám og störf. Málþingið er opið öllum og aðgangur ókeypis. Boðið verður upp á léttar kaffiveitingar.

Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:

13:00 Málþingið sett 00:10
13:10 Búsvæði fugla í Reykjavík Snorri Sigurðsson, líffræðingur 00:35
13:45 Að ljósmynda fugla í Reykjavík Elma Rún Benediktsdóttir, fuglaljósmyndari 00:25
14:10 Fuglar og leikskólinn Sigrún Björg Ingþórsdóttir, leikskólastjóri 00:25
14:35 Málþingi slitið 00:05
14:40 Kaffi og með því 00:20

Að málþinginu loknu verður boðið upp á fuglaskoðun í Friðlandinu í Vatnsmýri kl. 15:00.

Nánari upplýsingar um dagskrá Fuglaviku má finna á heimasíðum Reykjavík-iðandi af lífi og Fuglaverndar. Einnig er velkomið að hafa samband í síma eða tölvupósti.

Reykjavík-iðandi af lífi er fræðsluátak á vegum Reykjavíkurborgar um lífríki og náttúru borgarinnar. Sjá: www.reykjavik.is/idandi og www.facebook.com/idandi. Sími: 411-8535. Netfang: idandi@reykjavik.is.

Fuglavernd eða Fuglaverndarfélag Íslands eru öflug félagasamtök á sviði náttúruverndar sem sérhæfa sig í að hlúa að hinu auðuga og dýrmæta fuglalíif landsins.

Sjá: www.fuglavernd.is. Sími: 562-0477. Netfang: fuglavernd@fuglavernd.is.