Fjölskyldustund: Klippimyndasmiðja


13:00- 15:00
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Skógarleikur: Klippimyndasmiðja innblásin af trjáteikningum nýju sýningarinnar á barnabókasafni.

Verið velkomin á fjölskyldustund þar sem við leikum og lærum saman á barnabókasafni. Börn og forráðamenn eru velkomin á eiga saman góða stund með leiðbeinanda frá Norræna húsinu.

Aðgengi: Barnabókasafnið er aðgengilegt frá Bókasafni þar sem farið er niður tröppur. Fyrir hjólastóla er aðgengi með lyftu frá aðallhæð og þaðan í gegnum Hvelfingu sýningarsal. Aðgengileg salerni eru á aðalhæð hússins og eru öll salerni kynhlutlaus. Rampur leiðir að Norræna húsinu frá bílastæði og er sjálfvirkur hnappur hjá aðaldyrum.