Dagur Norðurlanda 2026: Framtíð lýðræðisins
08:30-10:30
Þriðjudaginn 24 mars, kl. 09.00-10.30.
Húsið opnar kl. 08.30 – kaffi og léttur morgunverður verður í boði.
ATH: Það er takmarkað pláss og þátttakendur verða að skrá sig á viðburðinn – smellið hér.
Einnig verður hægt að fylgjast með beinu streymi – smellið hér.
Lýðræði stendur á krossgötum. Upplýsingaóreiða, dalandi traust til stofnana, aukin skautun og vaxandi öfgahyggja – allt þetta veldur því að lýðræðið stendur hallari fæti víða um heim.
Norðurlöndin hafa lengi verið þekkt fyrir samfélagsgerð sem byggir á trausti og sterkum lýðræðislegum stofnunum. En með uppgangi tæknirisa er upplýsingalandslagið að breytast. Erlendir samfélagsmiðlar, knúnir áfram af viðskiptahvötum og ógagnsæjum reikniritum, gegna nú lykilhlutverki í að móta opinbera umræðu, stjórnmál og upplýsingaflæði.
Þessi umbreyting hefur skapað fordæmalausar áskoranir fyrir norræn lýðræðissamfélög. Því er jafnframt mikilvægt að spyrja: hvaða áhrif hefur hún á yngri kynslóðina?
Ungt fólk mótar nú lýðræðislega og pólitíska meðvitund sína í umhverfi sem er gegnsýrt af rangfærslum, skautun og reikniritadrifnum samskiptum. Hvernig mun það bera lýðræðið áfram ef traust þess til samborgara, opinberra stofnana – og jafnvel grunngilda lýðræðisins – á undir högg að sækja í hinu stafræna umhverfi?
Á Degi Norðurlanda 2026 köfum við ofan í þessi málefni og skoðum hvernig hægt er að styrkja lýðræðið – ekki síst með því að efla lýðræðislega vitund og samfélagsþátttöku yngri kynslóða.
Málþingið er haldið af Norrænu ráðherranefndinni og Norræna félaginu, og mun fara fram á ensku.
Dagskrá
Opnunarorð: Dagbjört Hákonardóttir, Formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs.
Lykilerindi: Clement Kjersgaard, ritstjóri og þáttastjórnandi hjá Danmarks Radio – Is Democracy on the Way Out?
Pallborð:
- Ragnheiður Geirsdóttir, Forseti Landssambands ungmennafélaga (LUF)
- Dagbjört Hákonardóttir, Formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs
- Maximilian Conrad, Prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
- Skúli Bragi Geirdal, Sviðsstjóri Netvís – Netöryggismiðstöðvar Íslands
- Ingunn Lára Kristjánsdóttir, Verkefnastjóri fréttaþjónustu á samfélagsmiðlum hjá RÚV
Eyrún Magnúsdóttir, blaðamaður, mun fundarstýra.
Upplýsingar um aðgengi má finna með því að smella hér.