Byggingarlist, Breiðholtið og borgin okkar
10:00 - 17:00
Tilraunir, rannsóknir og módel af húsum framtíðarinnar, séð með augum tíu ára barna, verða í anddyri Norræna hússins á meðan á Hönnunarmars stendur yfir.
Á sýningunni má sjá verk nemenda Hólabrekkuskóla sem unnin voru í vetur í samstarfi við kennara og fræðslufulltrúa Norræna hússins. Innblástur verkefnisins var sýningin Wasteland Ísland og sjálfbærni í byggingarlist en inn í verkefnið fléttast einnig almenn fræðsla um byggingarlist, skoðun á uppbyggingu Breiðholtsins og hönnun Alvars Aalto, sem er arkitekt Norræna hússins.
Í verkefninu var einnig áhersla á almenna umræðu og kynningu á arkitektúr í þeim tilgangi að auka meðvitund nemenda um hvernig umhverfi getur haft áhrif á líðan einstaklinga. Við framleiðslu verkanna voru nýtt efni sem einnig er að finna á sýningunni Wasteland Ísland í bland við önnur hefðbundin og óhefðbundin efni við módelgerðina.
Sponsored by: