Málþing um móttöku flóttafólks og hælisleitenda


Hver er þá náungi minn? Málþing um móttöku flóttafólks og hælisleitenda

Þjóðmálanefnd stendur fyrir málþingi um flóttafólk og hælisleitendur í Norræna húsinu, fimmtudaginn 22. október kl. 13-16. Málþingið er öllum opið og skráning er óþörf.

Ekki hvort heldur hvernig

Ísland er ekki ósnortið af vaxandi fjölda flóttafólks í heiminum og einum stærstu þjóðflutningum á síðari tímum. Markmið málþings þjóðmálanefndar er að kalla saman fólk með reynslu og þekkingu á ólíkum hliðum þess að taka á móti flóttafólki á Íslandi, með það fyrir augum að finna leið til að standa sem best að því verki að taka á móti flóttamönnum og hælisleitendum.

Segja má að fókus umræðunnar um flóttafólk á Íslandi hafi færst frá spurningunni hvort við eigum að taka á móti manneskjum á flótta, til spurningarinnar um hvernig við gerum það með sem bestum hætti, svo sómi sé að.

Þess vegna kallar þjóðmálanefnd til samtals í aðdraganda kirkjuþings og mun í kjölfar þess leggja fyrir þingið tillögu að stefnu þjóðkirkjunnar í málefnum flóttafólks, sem tekin verður til umfjöllunar heima í héraði og í sóknum landsins.

Fjölbreytt sýn og ólík reynsla

Málþingið í Norræna húsinu kallar saman fólk úr ólíkum geirum samfélagsins og með ólíka reynslu, sem öll nýtist í þágu samtalsins um hvernig við tökum á móti flóttafólki og hælisleitendum. Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:

HVER ER ÞÁ NÁUNGI MINN?
Koma og aðlögun flóttafólks og hælisleitenda á Íslandi

Málþing í Norræna húsinu 22. október kl. 13-16

Setning: sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup í Hólastifti

Reynsla mín af því að heimsækja flóttamannabúðir: Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður
Hvað skiptir mestu máli þegar hingað er komið?: Hrafnhildur Kvaran, Reykjavíkurdeild Rauða krossins
Reynsla mín af því að koma til Íslands sem flóttamaður: Atefeh Mohammadi
Áskoranir í móttöku flóttafólks: Brynjar Níelsson, alþingismaður
Hvað geta söfnuðirnir á Íslandi gert? Kristín Ólafsdóttir, Hjálparstarfi kirkjunnar

Hlé

Hvernig taka Íslendingar á móti útlendingum? Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur
Reynsla mín af því að vinna með umsækjendum um alþjóðlega vernd: Helga Vala Helgadóttir, lögmaður
Reynsla alþjóðlegra kirkjusamtaka af því að styðja flóttafólk: Sr. Þorbjörn Hlynur Árnason prófastur
Sýn mín á málaflokkinn: Eygló Harðardóttir, ráðherra velferðarmála

Málþinginu slítur Magnús E. Kristjánsson, forseti Kirkjuþings og fundarstjóri er sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir.

Þjóðmálanefnd kirkjunnar

Í þjóðmálanefnd, sem skipuð var af kirkjuþingi 2014 til fjögurra ára, eru, sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, formaður, sr. Guðný Hallgrímsdóttir, Ásbjörn Jónsson, sr. Gunnlaugar Stefánsson og Óskar Magnússon.