Laugardaginn 4. desember héldu þær Silla Knudsen frá Sono og Helga Haraldsdóttir viðburð þar sem gestum gafst kostur á að spreyta sig á uppskriftum af konfekti, sælgæti og heitum drykkjum og upplifa brögð desembermánaðar. Allar uppskriftirnar má nálgast hér.
Möndlur:
300g möndlur 1 ½ bolli vatn 1 bolli hvítur sykur ½ bolli púðursykur 1 msk kanill 1 msk kakóduft ½ tsk múskat ½ tsk negull ½ tsk chilli 1 tsk salt ½ tsk engifer ½ tsk kardimommur appelsínubörkur |
Setja allt þurrefnið á þurra pönnu og hræra. Bæta vatni og setja á miðlungshita. Þegar vatnið sýður setjið möndlur í. Hræra jafnt og þétt þar til kristallast, 10-15mín. Dreifa úr og láta kólna. |
Súkkulaði plötur:
350 g suðusúkkulaði 45% 1 tsk ristuð anísfræ 1 msk gróft salt ½ tsk negull 2-3 msk kakónibbur ½ tsk chilli Ferkst timian
2. 350 g hvítt súkkulaði 1 msk salt 1 msk ristuð nigellafræ 1 msk paprikuflögur 2 msk mulinn bismark brjóstsykur |
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði. Ristið fræin. Þegar súkkulaðið er bráðnað dreifið jafnt með sleikju á bökunarpappír. Dreifið fyrst salti ofan á og svo restinni. Látið í kæli og brjótið í bita þegar búið er að harðna. |
Heimagert marsipan:
1 ½ bolli möndlumjöl 1 ½ bolli flórsykur 1 tsk möndludropar 2 tsk rósavatn 1-3 msk aqua faba (kjúklingabaunavökvi) |
Mylja heilar möndlur í mjöl blender eða matvinnsluvél þar til verður að dufti. Bæta flórsykrinum, möndludropum, rósavatni og hræra saman. Bæta smátt og smátt við aqua faba þar til deigið límist saman. Á að vera rakt en ekki blautt. Hnoðið því saman í pulsu og plastið vel. Geymið í kæliskáp þar til á að nota. |
Glögg:
500 ml ferskur epladjús 500 ml sterkt hibiscus te (eða berjasafi/saft) 100 g sykur 1 tsk heill negull 2 kanilstangir 5 kardimommufræ 5 allspicefræ 20 g hibiscus 20 g mandarínubörkur 1 dl mandarínusafi Möndluflögur & rúsínur eftir smekk |
Kreistið allan safa og setjið í stórann pott. Bætið öllu kryddi í grisju/poka og bindið vel fyrir og bætið út í ásamt restinni nema möndluflögum og rúsínum.
Hitið upp á miðlungshita og látið standa í dágóðan tíma með lok á án þess að sjóði. Því lengur því meira bragð. Hér geta þeir sem vilja bætt við rauðvíni eða góðu rommi, sherry eða portvíni.
Hellið í glögg glös og bætið smá möndluflögum og rúsínum. |