Í rýminu verður listin hluti af norrænni samfélagsorðræðu
Hvelfing er nýtt nafn á sýningarsal og hönnunarbúð Norræna hússins. Rýmið er staðsett í kjallara hússins eða í hvelfingu þess. Hvelfingin er undirstaða hússins og í hvelfingunni eru oft verðmætustu gripirnir varðveittir.
Sýningarskráin 2020
Í Norræna húsinu er lögð mikil áhersla á jafnrétti, sjálfbærni og fjölbreytileika og mun það endurspeglast í sýningarskránni árið 2020. Sýningarnar verða ýmist settar upp af Norræna húsinu eða í samstarfi við aðra.
Opnunartímar
Þri.-sun. 10-17.
Lokað á mánudögum
Aðgangur er ókeypis
Þrjár sýningar 2020
Í janúar verður samsýning finnsks listafólks, Land handan hafsins, sem Pro Artibus stofnunin hefur veg og vanda af. Í maí opnar sýning í tilefni hálfrar aldar afmælis íslenskrar grafíkur. Þann 19. september opnum við síðan Underneath stóra og glæsilega samsýningu í Norræna húsinu sem fjallar um jafnrétti og kyn í norrænu samhengi.
Sagan
Sýningarsalur Norræna hússins var vígður árið 1971, þremur árum eftir að húsið opnaði. Ivar Eskeland, fyrsti forstjóri Norræna hússins, áttaði sig fljótlega á því að skortur var á sýningarrými í Reykjavík og hóf árið 1969 undirbúning að því að innrétta sýningarsal í lausu rými í kjallara hússins. Norðurlöndin tóku þátt í að fjármagna verkið. Árið 1971 var sýningarsalurinn tekinn í notkun og gegndi hann frá upphafi mikilvægu hlutverki í myndlistarlífinu í Reykjavík. Ýmsir áhugaverðir listamenn frá Norðurlöndum hafa sýnt þar í áranna rás. Sem dæmi má nefna Ju- hani Linnovaara, Roj Friberg, Ragnheiði Jónsdóttur og Hafsteinn Austmann.
NORRÆN HÖNNUN
Í Hönnunarverslun Norræna hússins er lögð áhersla á fallega norræna hönnun sem er sérvalin inn í verslunina.
Verslunin hefur, líkt og Norræna húsið, sjálfbærni og umhverfissjónarmið að leiðarljósi í sínu vöruvali.
- Blómapottar ARTEK
- ARTEK smávara
- Katariina Guthwert / Bee Medal
Opnunartímar
Þri.-sun. 10-17.
Lokað á mánudögum