Þrjár lausar stöður fyrir nýstofnað þjónustuteymi

Þrjár lausar stöður í hlutastarfi fyrir nýstofnað þjónustuteymi í Norræna húsinu

Norræna húsið í Reykjavík er rótgróinn norrænn fundarstaður fyrir listir, menningu, tungumál og samfélagsumræðu. Sjálfbærni er lykilatriði í fyrirtækinu okkar. Við leitumst að CO2 hlutleysi og leggjum áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika. Við bjóðum upp á djörf og viðeigandi listræna, bókmenntalega og félagslega dagskrá allt árið um kring.

Um starfið:

Um er að ræða þriggja manna þjónustuteymi sem vinnur á vöktum í Hvelfingu, sem er sýningarsalur Norræna hússins, og í bókasafni hússins. Við leitum að frískum einstaklingum, sem líður vel með að veita þjónustu, eru útsjónarsamir, hugmyndaríkir, eiga auðvelt með að vinna í mörgum verkefnum og líður vel að vinna bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi.

Um er að ræða þrjú hlutastörf (66%) á dagtíma og um helgar á föstum vöktum.

Dagleg verkefni innifela meðal annars:

  • Að taka á móti og aðstoða gesti sem heimsækja sýningar og bókasafn hússins.
  • Veita almennar upplýsingar til gesta og sinna tilfallandi verkefnum í bókasafninu og húsinu.
  • Aðstoða við viðburðatengd kynningarmál s.s. að koma efni inn á samfélagsmiðla.
  • Bjóða gestum upp á leiðsögn um húsið og sýningar sem eru í gangi.
  • Aðstoða verkefnastjóra og sýningarstjóra í Norræna húsinu við tilfallandi verkefni.

Um er að ræða spennandi tækifæri fyrir rétta aðila til bæði persónulegs og faglegs vaxtar í lifandi og alþjóðlegu starfsumhverfi.

Mikilvægt er að umsækjendur hafi:

  • Haldbæra reynslu af þjónustutengdum störfum.
  • Góða þekkingu á algengustu samfélagsmiðlum og vefumsjónarkerfum.
  • Áhuga og ástríðu fyrir því að starfa innan lista, menningar og bókmennta.
  • Hæfni til að tjá sig nokkuð reiprennandi á skandinavísku og ensku og kostur að búa yfir góðri íslenskukunnáttu. Það er plús ef þú hefur reynslu af vinnu sem snúa að aðgengi margbreytilegra hópa.

Umsókn: Frestur til að sækja um er 15.11.2024 kl. 23:59 (GMT+1). Umsóknir á dönsku, sænsku eða norsku með ferilskrá og stuttu kynningarbréfi skulu berast gengum vefsíðuna www.norden.org. Ekki verður tekið á móti umsóknum á annann hátt.
Smellið hér til að fara beint í umsóknarferlið.

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Kristjánsson, forstöðumaður fjármála- og starfsmannasviðs, johann@nordichouse.is eða í síma 897 7099.

Við hvetjum alla til að sækja um og metum mikils fjölbreytileika, fjölþætta reynslu og margbreytileika starfsfólks okkar. Við teljum að fjölbreytileiki sé mikilvægur til að ná fram sameiginlegri sýn okkar fyrir Norðurlönd.

Við hlökkum til að móttaka umsókn frá þér!