Langar þig til að sýna á Álandseyjum og skapa ný tengsl?
Norræna stofnunin á Ålandseyjum býður starfandi listamönnum víðs vegar að á Norðurlöndunum að sækja um þátttöku í sýningardagskrá Galleri NORDEN fyrir árið 2027.
Umsóknir eru velkomnar frá listamönnum sem vinna með hvers kyns miðla, tækni og listræna tjáningu. Valdar tillögur munu mynda fjölbreytta og áhugaverða sýningardagskrá sem endurspeglar breidd samtímalistar á Norðurlöndum og skapar jafnframt ný tækifæri til samskipta milli listamanna og áhorfenda á Álandseyjum.
Galleri NORDEN er staðsett í hjarta Mariehamn og er vettvangur fyrir list og norræn menningarsamskipti. Staðsetning Álandseyja milli Svíþjóðar og Finnlands skapar sérstakan og lifandi samkomustað fyrir listrænastarfsemi, sjónarmið og áhorfendur frá Norðurlöndum.
Valdir listamenn fá sýningartíma sem nemur um fimm vikum, auk stuðnings frá Norrænu stofnuninni á Ålandseyjum, við kynningu og opnun sýningarinnar. Enginn umsóknar- eða sýningarkostnaður er innheimtur. Listamenn sem búsettir eru utan Álandseyja geta fengið endurgreiddan fyrirfram umsaminn ferðakostnað, gistingu og flutningskostnað vegna sýningarinnar.
Umsóknarfrestur: 31. október 2026 á nipa.ax/stall-ut.