Norræna húsið auglýsir eftir fjármálastjóra

Í Norræna húsinu starfar kraftmikið teymi sem nú leitar að fjármálastjóra.

Við leggjum mikla áherslu á að finna einstakling sem er traustur, skapandi og lausnamiðaður. Viðkomandi verður bæði að geta unnið sjálfstætt og verið áreiðanlegur liðsmaður.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana og uppgjöra
  • Eftirfylgni með reikningagerð, launaútreikningum og tekjustreymi
  • Umsjón með útborgun launa og greiðslu reikninga
  • Samskipti við yfirvöld og Ríkisendurskoðun
  • Starfsmannahald
  • Samningagerð
  • Staðgengill forstjóra
Menntunar- og hæfnikröfur
  • Framhaldsnám á háskólastigi sem nýtist í starfi
  • Marktæk reynsla af fjármálastjórnun og starfsmannahaldi
  • Mjög góð kunnátta í íslensku ásamt góðri kunnáttu í einu skandinavísku máli og ensku
  • Þekking á norrænu samstarfi og menningarstjórnun er kostur

 

Umsjón með ráðningu hefur Sabina Westerholm, forstjóri.  Veitir hún nánari upplýsingar um starfið í gegnum netfangið sabina@nordichouse.is eða í síma +354 856 0900.

Með umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá og stutt kynningarbréf. Umsókn skal vera á dönsku, sænsku eða norsku.

Ráðið er í starf fjármálstjóra til allt að fjögurra ára í senn með möguleika á framlengingu ráðningarsamnings skv. reglum Norrænu ráðherranefndarinnar.

Umsóknarfrestur er til 17.10.2021. Aðeins er tekið við umsóknum í gegnum heimasíðu Norrænu ráðherranefndarinnar www.norden.org hér: https://www.norden.org/da/node/54280

Umsóknir sem berast með öðrum leiðum eru ekki teknar til greina.