Leshópur í Norræna húsinu

FYRIR OKKUR SEM ELSKA GÓÐAR SÖGUR

Vertu með í leshópi Norræna hússins á fallegasta bókasafni Reykjavíkur. Í leshópnum tölum við um norrænar fagurbókmenntir og umræðum stjórna Erling Kjærbo og Susanne Elgum sem starfa á bókasafninu.

Við lesum á skandinavísku og tölum saman á „blandinavísku“ þegar við hittumst á bókasafninu. Einnig verður boðið upp á kaffi og te.
Bækurnar eru aðgengilegar á bókasafni Norræna hússins, en hægt er að panta og sækja báðar bækurnar með bókasafnskorti. Áttu ekki bókasafnskort? Ekkert mál, meðlimir leshópsins fá frítt bókasafnskort!
Þátttaka í leshópnum er án endurgjalds, en þar sem að takmörkuð pláss eru í boði eru áhugasamir beðnir um að skrá sig með því að senda tölvupóst á susanne@nordichouse.is þar sem tekið er fram hvaða dag eða daga viðkomandi vill taka þátt:

Miðvikudaginn 20.apríl kl. 19:00-20:30: Blomsterdalen eftir Niviaq Korneliussen

Miðvikudaginn 18.maí kl. 19:00-20:30: Meter í sekunden eftir Stine Pilgaard.

Áhugasamir geta lesið umsagnir okkar um bækurnar hér: https://nordichouse.is/category/fra-bokasafni/bokasafnid-maelir-med/