Getur rafvæðing bílaflotans verið efnahagslega hagkvæm?


09:00-10:30

Hvaða aðgerðir eru hagkvæmastar til að flýta fyrir rafbílavæðingu og hvaða árangri skila þær? Getur rafvæðing bílaflotans verið efnahagslega hagkvæm?

HR og HÍ hafa unnið að verkefni um greiningu á þjóðhagslegri hagkvæmni rafbílavæðingar og hafa smíðað líkan sem metur áhrif af beitingu mismunandi hagrænna hvata stjórnvalda, s.s. ívilnunum, sköttum og gjöldum.

Niðurstöður greiningarinnar verða kynntar á opnum fundi í Norræna húsinu fimmtudaginn 1. nóvember kl. 9 – 10.30. Niðurstöðurnar eru mikilvægt innlegg til að meta næstu skref í orkuskiptum í samgöngum.

Fundurinn er ókeypis og öllum opinn. Skráningar er óskað á heimasíðu Samorku

Verkkaupar eru Samorka, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Græna orkan – samstarfsvettvangur um orkuskipti, Íslensk NýOrka og Orkusetur.

 

Skoða fleiri viðburði Norræna hússins