Dagur Norðurlandanna


15:30 - 17:00

Dagur Norðurlandanna

Norræna félagið og Norræna húsið bjóða til hátíðardagskrár í Norræna húsinu föstudaginn 23. mars kl 16:00 – 17:00, að loknu málþingi um skýrslu Norrænu ráðherranefndarinn State of the Nordic Region, í tilefni af degi Norðurlanda. Boðið verður upp á léttar veitingar frá 15:30. 

Dagskrá: 

Bogi Ágústsson, formaður Norræna félagsins býður gesti velkomna.

Silja Dögg Gunnarsdóttir, formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs flytur ávarp

Auður Ava Ólafsdóttir, rithöfundur les upp úr bók sínni Ör sem er tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2018.

Ingi Thor Jónsson, fjallar um Norðurlöndin sem áfangastað. Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestrarröð Norræna félagsins, ”Vegferð til velferðar” í tilefni 100 ára Fullveldisafmæli Íslands.

Léttar veitingar í boði áður en dagskráin hefst.

Allir velkomnir!