ARTOTEK
Listlánadeild bókasafns Norræna hússins er glæsilegt safn grafík listaverka eftir norræna grafíklistamenn. Með aðeins lánþegaskírteini í bókasafninu geta allir fengið 3 grafíkverk að láni í 3 mánuði í senn. Lánþegaskírteini kostar 2000 kr. og gildir í 1 ár. Með skírteininu færðu 10% afslátt hjá MATR og í Hvelfingu hönnunarbúð.
Opið þri-sun 10-17. Lokað á mánudögum
Fáðu myndlist að láni í Artoteki Norræna hússins
Artótek eða listlánadeild bókasafns Norræna hússins á sögu sína að rekja til ársins 1972. Það ár ákvað Bandalag norrænna grafíklistamanna að gefa Norræna húsinu 200 grafíkverk eftir norræna grafíklistamenn sem skyldi verða stofn að listlánadeild. Gjöfin var háð því skilyrði að verkin yrðu lánuð út eins og bækur safnsins.
Útlán hófust árið 1976 og þóttu mikil nýjung og mæltust vel fyrir. Töluvert hefur bæst við safnið frá árinu 1976 og verkin nú á 6. hundrað.
Meðal listamann sem má finna verk eftir í Artoteki Norræna hússins eru:
Ragnheiður Jónsdóttir, Svenrobert Lundquist, Jóhanna Bogadóttir, Tomo Aalto, Jónína Lára Einarsdóttir, Kjartan Guðjónsson, Sigrún Eldjárn, Lars Gunnar Nordström, Bragi Ásgeirsson, Sigrun Guðjónsdóttir, Tryggvi Ólafsson, Helgi Þorgils, Björg Þórsteinsdóttir, Andres Kjær, Baltasar, Osmund Hansen, Tage Stentoft og fleiri og fleiri.
Vertu velkomin til okkar í Artotek Norræna hússins til að skoða úrvalið
Opið þri-sun 10-17. Lokað á mánudögum