Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent í Norræna húsinu í fimmta skiptið fimmtudaginn 10. september næstkomandi. Verðlaunin eru veitt annað hvert ár alþjóðlega þekktum rithöfundi fyrir að eiga þátt í endurnýjun frásagnarlistarinnar en þannig hljómaði einmitt rökstuðningur sænsku Akademíunnar þegar Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1955.
Verðlaununum er einnig ætlað að halda á lofti nafni Halldórs Laxness á alþjóðlegum vettvangi. Að þeim standa Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Reykjavík, Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Íslandsstofa, Gljúfrasteinn og Forlagið, útgefandi Halldórs Laxness á Íslandi. Norræna húsið er samstarfsaðili Alþjóðlegu bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2026.
Verðlaunin voru fyrst afhent árið 2019 þegar breski rithöfundurinn Ian McEwan veitti þeim viðtöku. Tveimur árum seinna hlaut tyrkneski höfundurinn Elif Shafak verðlaunin og árið 2022 hlotnuðust þau úkraínska höfundinum Andrei Kúrkov. Salman Rushdie var handhafi þeirra árið 2024.
Í ár hlýtur verðlaunin pólski rithöfundurinn Olga Tokarczuk. Hún mun veita þeim viðtöku fimmtudaginn 10. september og hefst dagskráin kl. 17.00 í Norræna húsinu. Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra mun afhenda Tokarczuk verðlaunin, sem eru peningaverðlaun að upphæð 15.000 evrum með verðlaunapeningi. Halla Oddný Magnúsdóttir og Halldór Guðmundsson munu svo leiða samræður við Tokarczuk á sviði eftir afhendinguna. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Í rökstuðningi valnefndar segir Salman Rushdie: „Olga Tokarczuk er einfaldlega einn fremsti núlifandi rithöfundur heims. Í verkum hennar renna harmleikur, gamanleikur, saga og írónía saman í einstaklega bragðgóða bókmenntablöndu. Það gleður mig mjög að hún hafi þegið Laxness-verðlaunin. Með því hefur hún sýnt okkur öllum mikinn heiður.“
Síðdegis föstudaginn 11. september mun fara fram dagskrá í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð þar sem skáldin Ewa Marcinek, Maó Alheimsdóttir og Jakub Stachowiak munu lesa úr verkum sínum ásamt Olgu.
Í valnefnd Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness árið 2026 voru Salman Rushdie, handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2024, Egill Helgason fjölmiðlamaður og Stella Soffía Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík.
Á íslensku hafa komið út tvær bækur eftir Olgu Tokarczuk, báðar í þýðingu Árna Óskarssonar hjá Bjarti. Drag plóg þinn yfir bein hinna dauðu var gefin úr 2022 og árið 2025 kom út skáldsagan Hús dags, hús nætur. Þá hefur smásagan “Dansarinn” komið út í þýðingu Steinunnar G. Helgadóttur og birtist sú þýðing í Tímariti Máls og menningar, 4. hefti 2024.
Olga Tokarczuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2018. Hún hefur hlotið fjölda annarra verðlauna fyrir verk sín, meðal annars Alþjóðlegu Man Booker verðlaunin og helstu bókmenntaverðlaun Póllands, Nike, tvisvar sinnum. Eftir hana liggja fjögur smásagnasöfn, níu skáldsögur, þrjú ritgerðasöfn. Tokarczuk hefur einnig skrifað óperu librettó sem byggir á einni af skáldsögum hennar, en það sýnir einmitt breidd hennar sem höfundar og hvernig hún vinnur þvert á miðla. Tokarczuk lagði stund á sálfræði í háskóla og endurspeglast þekking á því sviði í verkum hennar. Hún fæst við goðsagnakennd og tímalaus stef og skapar í verkum sínum bæði ögrandi heima og áhugaverðar persónur. Verk hennar njóta mikilla vinsælda almennra lesenda og hafa einnig fengið mikil lof gagnrýnenda.
