Viltu leiða og þróa Norræna húsið í Reykjavík?

Viltu leiða og þróa Norræna húsið í Reykjavík?

Norræna ráðherranefndin leitar að nýjum framkvæmdastjóra fyrir Norræna húsið í Reykjavík, einstaka menningarstofnun og mikilvægum samkomustað norrænnar listar, menningar, bókmennta og samfélagsumræðu.

Hér gefst þér tækifæri til að leiða rótgróna menningarstofnun með sterka menningarlega sjálfsmynd og þróa áfram hlutverk hennar sem brúarsmiður milli Íslands og annarra Norðurlanda.

Starfið hentar reyndum og framsýnum leiðtoga með góða þekkingu á lista- og menningarsviðinu, sterka stefnumótunar- og stjórnunarhæfni og brennandi áhuga á að skapa samstarfstengsl og efla samstarf þvert á landamæri.

Sem framkvæmdastjóri berð þú ábyrgð á stjórnun 14 starfsmanna og hefur yfirumsjón með stefnumótun og þróun stofnunarinnar, listrænni og menningarlegri dagskrá, rekstri og samstarfstengslum.

Hér er um að ræða spennandi tækifæri til að hafa áhrif á norrænt menningarsamstarf og efla hlutverk menningar í samfélaginu.

Starfsstöð: Reykjavík, Ísland
Umsóknarfrestur: 6. desember 2026
Starfsbyrjun: 1. júní 2027 eða samkvæmt samkomulagi.

Deildu endilega auglýsingunni með áhugaverðum umsækjendum í tengslaneti þínu!

Lestu meira um starfið og umsóknarferlið hér!