Blue background with an abstract artwork

Að efla faglega þróun sýningarstjórnunar á Íslandi


12:00-16:00
Aðgangur ókeypis

Kúrator? Ég kannast ekki við það: Að efla faglega þróun sýningarstjórnunar á Íslandi

KOK stendur fyrir málþingi og umræðum þar sem sjónum verður beint að sýningarstjórnun, faglegri þróun, tengslum listamanna, sýningarstjóra og stofnana, sem og þeim aðstæðum sem móta gerð sýninga og menningarviðburða.

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Viðburðurinn er framhald af samtali sem KOK hefur staðið fyrir um sýningarstjórnun á Íslandi. Að þessu sinni verður sjónum beint að því hvernig sýningarstjórnun fer fram í dag, hvaða tækifæri hún skapar fyrir fólk sem starfar á menningarvettvangi og hvernig við getum í sameiningu bætt starfsskilyrði okkar.

Með erindum, spurningum og opnum umræðum viljum við leiða saman listamenn, sýningarstjóra og annað fagfólk á myndlistarvettvangi til að deila reynslu, endurskoða viðteknar starfsaðferðir og velta fyrir okkur hvað mætti gera öðruvísi.

Það er okkur mikil ánægja að taka á móti Anne Szefer Karlsen og Paul O’Neill, sem verða gestir okkar og taka þátt í erindum og umræðum yfir daginn.

Anne Szefer Karlsen (hán) er sýningarstjóri og prófessor í sýningarstjórnun við lista-, tónlistar- og hönnunardeild Háskólans í Bergen (frá 2015). Í starfi sínu vinnur hán á mörkum sýningargerðar, útgáfustarfsemi og opinberrar umræðu, með sérstaka áherslu á samstarf og starfshætti listastofnana. Hán starfaði áður sem yfirráðgjafi og rannsóknarstjóri Bergen Assembly (2018–2020) og var framkvæmdastjóri Hordaland Art Centre í Bergen í Noregi (2008–2014). Hán var einnig annar ritstjóra Self-Organised, safnrits sem fjallar um sameiginlega og sjálfstætt skipulagða menningarstarfsemi.

Í Norræna húsinu flytur Anne erindið „Exercising Networks“, þar sem hán fjallar um reynslu sína af uppbyggingu tengslaneta og hvernig virk þátttaka og það að mæta á vettvang getur verið gefandi leið til að hafa áhrif á framtíðina.

Paul O’Neill (hann) er írskur sýningarstjóri, listamaður, rithöfundur og kennari. Hann er listrænn stjórnandi PUBLICS, sýningarstjórnunarvettvangs og samtímalistarýmis í Helsinki, sem einnig hýsir sérhæft bókasafn. Áður stýrði hann framhaldsnámi við Center for Curatorial Studies í Bard College í New York og hefur verið meðsýningarstjóri yfir 80 sýninga víða um heim. Meðal bóka hans eru The Culture of Curating and the Curating of Culture(s) og safnritið Not Going It Alone: Collective Curatorial Curating, sem hann var meðritstjóri að.

Viðburður KOK sækir meðal annars innblástur í Positioning: A Symposium on Curatorial Learning in the Nordic-Baltic Region & Beyond 2026 og miðar að því að tengja alþjóðlega umræðu um hlutverk sýningarstjórnunar við íslenskan veruleika.

Umræðustjórn: KOK (Becky Forsythe, Helena Solveigar Aðalsteinsbur og Þórhildur Tinna Sigurðardóttir)

Dagskrá 17. nóvember:

12:00–12:30: Inngangur frá KOK

12:30–13:00: Erindi Paul O’Neill

13:00–13:30: Umræður og vinnustofa með Paul O’Neill og KOK

13:30–14:00: Kaffihlé

14:00–14:30: Erindi Anne Szefer Karlsen

14:30–15:00: Umræður og vinnustofa með Anne Szefer Karlsen og KOK

15:00–16:00: Hringborðsumræður

Aðgengisupplýsingar um Norræna húsið má nálgast á heimasíðu.