Hyggestund – Ímyndaðu þér og hannaðu þína eigin borg!


13:00-15:00
Barnabókasafn
Aðgangur ókeypis

Ímyndaðu þér og hannaðu þína eigin borg!

Komið og takið þátt í skemmtilegri og skapandi vinnusmiðju fyrir börn og fylgdarfólk þeirra á Barnabókasafninu – ekki er nauðsynlegt að skrá sig!
Í þessari skemmtilegu smiðju notum við ýmsar skapandi aðferðir, svo sem teikningu og klippimyndagerð, til að hanna draumaborgina okkar.
Með innblástur frá sýningunni Kroppar og kassar (Bodies and Buildings) og úrvali barnabóka munu börn og fjölskyldur þeirra vinna saman að því að ímynda sér, byggja og skapa sína eigin, einstöku borg.

Gestir eru hvattir til að mæta snemma til að heimsækja sýninguna í Hvelfingu og fá innblástur frá sýningunni til að búa til óróann sinn.

Föndurstundin er ókeypis og ætluð öllum sem hafa áhuga, einnig er ókeypis inn á allar sýningar Norræna hússins.

Opnunartími og aðgengi: Barnabókasafn Norræna hússins er öllum opið, aðgengi fyrir hjólastóla er í með lyftu frá aðalinngangi og þaðan í gegnum sýningarrýmið Hvelfingu. Aðgengilegt salerni og skiptiaðstaða er á aðalhæð hússins. Starfsfólk bókasafns veitir frekari upplýsingar og aðstoð sé hennar þörf.