The text "STILLUM SAMAN STRENGI 
Átak um ábyrga notkun gervigreindar" on a colourfull background.

STILLUM SAMAN STRENGI


17:00
Elissa Auditorium
Aðgangur ókeypis

STILLUM SAMAN STRENGI: Átak um ábyrga notkun gervigreindar 

Á Degi íslenskrar tungu, 16. nóvember, hrindir Bandalag íslenskra listamanna af stað átakinu STILLUM SAMAN STRENGI með útgáfuhófi í Norræna húsinu. Þar verða kynnt og gerð aðgengileg til dreifingar tilmæli BÍL um ábyrga notkun gervigreindar. 

Markmið tilmælanna er að skapa jafnvægi milli tækniþróunar og nýsköpunar sem og virðingar fyrir höfundarrétti og forsendum mannlegrar sköpunar. Þeim er ætlað að leiðbeina opinberum aðilum, stofnunum, fyrirtækjum og félagasamtökum um ábyrga notkun gervigreindar. Sérstök áhersla er lögð á vernd höfundarréttar, að notkun verka og flutnings byggist á viðeigandi heimildum og að listafólk og höfundar njóti sanngjarnra kjara og þóknunar. Þannig er stuðlað að ábyrgri notkun gervigreindar, um leið og vernd mannlegrar sköpunar og sjálfbærni í listum og menningu er höfð að leiðarljósi. 

Á næstu dögum verða einnig birt kynningarmyndbönd og greinar í fjölmiðlum þar sem ólíkir einstaklingar varpa frekara ljósi á málefnið. Með átakinu vill BÍL vekja athygli á mikilvægi höfundarréttar, virðingu fyrir listafólki og vernd mannlegrar sköpunar og stilla saman strengi með þjóðinni um ábyrga notkun gervigreindar. 

Dagskrá 

17:00–17:10 | STILLUM SAMAN STRENGI – HÖFUM HÁTT
Skólahljómsveit Vesturbæjar og Miðbæjar (SVoM) leikur undir stjórn Inga Garðars Erlendssonar. 

17:15–17:25 | Opnunarávarp
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands. 

17:25–17:35 | Ávarp
Logi Már Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. 

17:35–17:50 | Hugvekja
Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari. 

Kynnir: Jóna Hlíf Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna. 

Boðið verður upp á léttar veitingar og hægt verður að næla sér í eintak af tilmælum BÍL um ábyrga notkun gervigreindar, fallegan fjölnota poka og límmiða með listaverki eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur. 

Öll velkomin.