Verkefnastjóri fyrir barnabókmenntahátíðina Mýrin

Mýrin er alþjóðleg barnabókmenntahátíð sem haldin er annað hvert ár en hátíðin hefur verið starfrækt frá árinu 2001. Hátíðin er haldin í Norræna húsinu í Reykjavík og stendur yfir í nokkra daga að hausti.  

Félagið sem stendur að hátíðinni heitir Mýrin og eftirtaldar stofnanir og samtök mynda það félag: IBBY á Íslandi, SÍUNG (Samtök barna- og unglingabókahöfunda), Rithöfundasamband Íslands, Háskóli Íslands, Borgarbókasafn Reykjavíkur og Norræna húsið. Hátíðin dregur nafn sinnt af Vatnsmýrinni og þemað sem valið er hverju sinni tengist henni. Má hér nefna sem dæmi Köttur úti í mýri (2001), Draugar úti í mýri (2008), Matur úti í mýri (2012), Páfugl úti í mýri (2014) og Saman úti í Mýri (2021). 

Næsta hátíð verður haldin í september 2027 og nú leitum við að verkefnastjóra sem í samstarfi við stjórn Mýrarinnar mun taka að sér skipulagningu og framkvæmd hátíðarinnar.  Mýrarhátíðarnar byggja á fjölbreyttri dagskrá með þátttöku almennings, höfunda og fræðimanna, innlendra og erlendra. Á Mýrarhátíðum fara til dæmis fram pallborðsumræður, fyrirlestrar, sýningar, vinnustofur og fleira í takt við þemað hverju sinni. 

Verkefnastjóri, sem ber ábyrgð á framkvæmd hátíðarinnar í samstarfi við starfsnema og ráðgefandi teymi hennar, sinnir eftirfarandi verkefnum:  

  • Skipuleggur og framkvæmir þriggja daga dagskrá undir þema hátíðarinnar. 
  • Hefur samband við þátttakendur í pallborðsumræðum, umræðustjóra og aðra þátttakendur. 
  • Skipuleggur praktísk atriði varðandi þátttakendur á hátíðinni. 
  • Skrifar og sendir inn styrkumsóknir. 
  • Sér um fjárhagsáætlun. 
  • Haldi utan um kynningarmál í aðdraganda hátíðar. 

 

Umsóknarfrestur er 15. Ágúst. 

Ráðningartíminn miðast við 15. janúar til loka september 2027. Verkefnisstjóri hefur vinnuaðstöðu í Norræna húsinu á opnunartíma hússins.  

Áhugasamir vinsamlegast sendi umsókn á netfangið myrinfestival@gmail.com. 

Gert er ráð fyrir að starfið samsvari 20% hlutastarfi yfir ráðningatímann en starfshlutfall verður mismikið eftir mánuðum og mest þegar dregur nær hátíðinni og meðan á henni stendur.  

Nánari upplýsingar: myrinfestival@gmail.com