Verið velkomin á opnun sýningarinnar Himna: Goðsagnir & Skáldskapur úr Jörðu


15:00
Hvelfing
Aðgangur ókeypis

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Himna: Goðsagnir & Skáldskapur úr Jörðu

Laugardaginn 6. júní kl 15:00

Listamenn:
Peder Bjurman (SE) Linda Boļšakova (LV) Lucrezia Costa (IT) Eglė Budvytytė (LT) Johanna Seeleman (DE) Sigrún Thorlacius (IS) Gediminas & Nomeda Urbonas (LT)

Sýningin Himna skoðar endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, viðhaldast og endurnýja sig. Vísindalegar og pósthúmanískar nálganir líta í auknum mæli á jarðveg sem sjálfstætt lifandi kerfi: kvikt, samlífandi ferli fremur en dauða auðlind. Jarðvegur felur í sér bæði lífsgefandi vöxt og mikilvæga hringrás niðurbrots og rotnunar. Vegna ógagnsæis hans og ómannlegra tímahátta býður jarðvegur upp á getgátur, goðsagnir og frásagnir samhliða vísindalegri þekkingu. Með því að leiða saman samtímalistamenn af ólíkum toga sýnir Himna jarðveg sem fjöltegunda arkíf og lifandi minni, og skapar rými fyrir endurnýjuð jarðnesk tengsl handan mannmiðjunar.

Sýningarstjóri: Thomas Pausz (FR / IS)

Við minnum einnig á leiðsögn sýningarstjóra á Sunnudaginn 7. júní kl 14:00. Lesið meira um það hér. 

Einnig flytur Linda Boļšakova gjörning í kjölfar leiðsagnarinnar kl 15 á sunnudag, lesið um það hér.

Upplýsingar um aðgengi má finna með því að smella hér.